Múspell
kvika streymir og kraftar losna
klettar brenna
barnið dreymir en taugar trosna
tárin renna
bráðna steinar og bergið flýtur
brostnir draummar
ljósið veinar og loginn hvítur
landið kraumar
bálið sem veldur bardögum
bjarma á kveldið kastar
surtur fer heldur hamförum
hér sefur eldur fastar
jötnar æða um jörð í molum
jöklar gráta
ísinn bræða á æstum kolum
æpir hnáta
móðir huggar þar mædda dóttur
múspall fagnar
dansa skuggar er dofnar þróttur
dagur þagnar
þú deyrð í nótt!
himinninn er hulinn sóti
hraunið rennur okkur móti
svartnætti til allra átta
illt er myrkur múspellsnátta
finnum hvernig fætur svíða
feigir eftir okkur bíða
saman munum lífið láta
lítil rödd er hætt að gráta
ryðst úr sprungum, gjám og gjótum
gríðarbál í risafljótum
loki gefur lausan tauminn
leikur sér við stríðan strauminn
liggjum við á litlu skeri
lyftist glóðin nær
sárt að hérna beinin beri
barnung dóttir kær
loks ég finn að lítill skrokkur
lætur eftir sitt
hraunið breiðir yfir okkur
elsku barnið mitt