Hvað með það?
Það er skrýtið að segja
Því ég var að sjá þig í fyrsta sinn
En samt einhvern veginn veit ég
Að þetta eru örlögin
Er þú heilsar mér
Ég bara stari dreyminn
Ekki horfa á mig
Ég verð allt of feiminn
Ég held ég hafi aldrei fundið
Þessa tilfinningu fyrr en núna
Ég veit þú varst að hitta mig
Og ég var líka að hitta þig og hvað með það?
Ég segi hæ og tíminn stendur í stað
Er búinn að gleyma hvernig samræður virka
Þú segir hæ aftur og ég ætla að opna munninn
En þú stoppar mig um leið og segir
Ég veit alveg hvað þú ert að ganga í gegnum
Því ég finn það líka
Það er ekkert gaman hér hvort sem er
Eigum við að kíkja heim?
Það er skrýtið að segja
Því ég var að sjá þig í fyrsta sinn
En samt einhvern veginn veit ég
Að þetta eru örlögin
Ég held ég hafi aldrei fundið
Þessa tilfinningu fyrr en núna
Ég veit þú varst að hitta mig
Og ég var líka að hitta þig og hvað með það?
Ég held ég hafi aldrei fundið
Þessa tilfinningu fyrr en núna
Ég veit þú varst að hitta mig
Og ég var líka að hitta þig og hvað með það?